Company logo

Valmynd

Power BI fyrir byrjendur - 18. og 19. okt

18. okt. 2022

09:00-12:00

Teams

Verð: 49.000 kr. m. vsk

Fjarnámskeið í Power BI fyrir byrjendur verður haldið dagana 18. og 19. október og nær yfir tvo daga, 3 tíma í senn. Microsoft Power BI auðveldar stjórnendum og greinendum til muna að smíða greiningar ofan á gögn fyrirtækis. Verð: 49.000 m. vsk.

FJARNÁMSKEIÐ Í POWER BI FYRIR BYRJENDUR

Á þessu fjarnámskeiði verður farið yfir uppsetningu skýrslna og hvernig hægt er að deila þeim á þægilegan máta með notendum. Með Power BI er hægt að útbúa myndræn og gagnvirk mælaborð. Slíkt gefur góða innsýn í rekstrarumhverfi fyrirtækis og getur oft leitt í ljós óvænta möguleika til þess að auka forskot.

Á námskeiðinu er farið í gegnum atriði á borð við:

  • Gagnalíkön
  • Gagnalindir
  • Hreinsun gagna
  • Skýrslugerð
  • Framsetning á mælaborði
  • Síun (e. Filtering), stigveldi og flokkanir gagna í skýrslum og mælaborðum
  • Reiknaðir dálkar og mælieiningar
  • Deila skýrslum með öðrum notendum
  • Aðgangsstýringar og keyrslustýringar

 

Áhersla er lögð á að skilningur fáist á þremur undirstöðuatriðum og vinnuflæði milli þeirra:

  • Smíði gagnamódela
  • Smíði skýrslna
  • Dreifing skýrslna

 

Ávinningur af námskeiði:

  • Framsetning gagna úr mismunandi gagnalindum
  • Uppsetning gagnalíkans í Power BI
  • Skýrslugerð og mælaborð sem byggja á gagnalíkani
  • Dreifing skýrslna innan fyrirtækis
  • Sjálfvirkar keyrslur og aðgangsstýringar
  • Vinnuflæði og meira sjálfbjarga í greiningum innan Power BI umhverfis

 

Fyrir hverja?

Námskeiðið hentar öllum þeim sem vilja öðlast meira færni í gagnavinnslu og framsetningu gagna. Það nýtist þeim sem vilja vera meira sjálfbjarga og fá innsýn í sitt rekstrarumhverfi hvort sem það er fjármálastjóri, innkaupastjóri, mannauðsstjóri, eða annar innan fyrirtækis.

Fyrirkomulag námskeiðs:

Námskeiðinu er skipt upp í tvo daga og er yfirferðin 3 klukkustundir í senn. Námskeiðið fer fram í gegnum Teams.

Atriði sem þarf að setja upp fyrir námskeiðið:

  • Tveir tölvuskjáir, annar þeirra til að fylgjast með yfirferðinni og hinn til að vinna verkefni
  • Uppsetning á Power BI Desktop, sem má finna hér
  • Stofna notanda í Power BI Service ef hann er ekki til nú þegar, það má gera með því að smella hér. Hægt er að stofna frían notanda í 60 daga en eftir það þarf að kaupa Power BI pro leyfi

 

Leiðbeinandi:

Þóra Regína Þórarinsdóttir, sérfræðingur í gagnagreiningum hjá Advania. 

Skoða og fylgja á LinkedIn

Afskráning á námskeið fer fram í gegnum netfangið bi@advania.is
Afbóki einstaklingur sig á námskeið með minna en 24 klst. fyrirvara áskiljum við okkur rétt til að rukka allt að hálfvirði námskeiðsins.